Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga

6. fundur 17. september 2019 kl. 17:30 - 18:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Áshildur Linnet formaður
  • Friðrik V. Árnason varaformaður
  • Davíð Harðarson aðalmaður
  • Ingþór Guðmundsson aðalmaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Gísli Stefánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður H. Valtýsson, skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sigurður H. Valtýsson skipulags-og byggingarfulltrúi.
Dagskrá

1.Miðbæjarsvæði - Deiliskipulagsbreyting - Breiðuholt

1909019

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Miðsvæðis, uppdráttur dags. 12.09.2019. Í breytingunni felst m.a. að þar sem gert er ráð fyrir 3 parhúsum á lóðunum við Breiðuholt 12-14, 16-18 og 20-22 er gert ráð fyrir 3 raðhúsum á svæðinu í stað parhúsanna. Hvert raðhús verður með 3 litlum íbúðum. Við þessa breytingu fjölgar íbúðunum úr 6 parhúsaíbúðum (3 parhús) í 9 raðhúsaíbúðir (3 raðhús). Lóðunum fækkar í 3 þar sem gert er ráð fyrir einni lóð fyrir hvert þriggja íbúða raðhús. Lóðarmörkum og snúningsfleti í austurenda Breiðuholts er breytt lítillega til að skapa betra aðgengi að bílastæðum á lóð.
Afgreiðsla skipulagsnefndar:
Samþykkt að málsmeðferð tillögunnar verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt. Grenndarkynna skal tillöguna fyrir lóðarhöfum við götuna, sem hefur verið úthlutað, lóðum Breiðuholts 6, 8, og 10.

2.Skyggnisholt 12-14. Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi

1909023

Fyrirspurn frá Brix ehf. / SES Hús ehf. um breytingu á deiliskipulagi Miðsvæðis vegna lóðarinnar Skyggnisholts 12-14. Í breytingunni felst m.a. að íbúðum er fjölgað úr 12 í 20, breyting og stækkun byggingareita, húshæðir hækkaðar úr 6 m í 6,6 m og byggingarmagn aukið.
Afgreiðsla skipulagsnefndar:
Erindið er ekki tækt til afgreiðslu, lóðinni hefur ekki verið úthlutað.

3.Leyfislausar byggingarframkvæmdir

1909018

Almennar umræður um leyfislausar byggingarframkvæmdir og breytingar.
Afgreiðsla skipulagsnefndar:
Brýnt er að tekið verði á leyfislausum framkvæmdum í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og ákvæðum reglugerðarinnar í þeim efnum fylgt eftir.

4.Frisbee völlur í Aragerði

1811009

Skoða staðsetningu á körfu við vörðuna á Arahól.
Afgreiðsla skipulagsnefndar:
Staðsetning körfunnar er óheppileg og skyggir á vörðuna. Því er beint til umhverfisdeildar að færa körfuna á annan stað þar sem hún skyggir ekki á vörðuna.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Getum við bætt efni síðunnar?