Tölvunámskeið – spjaldtölvur og snjallsímar

Námsþættir:

  • Rafræn skilríki og síður sem flestir þurfa að geta sótt ( heilsuvera.is, skattur.is, o.fl. )
  • Heimabanki og netverslun ( millifærslur í heimabanka, reikningar, bókanir og pantanir á netinu með kreditkorti )
  • Samfélagsmiðlar og efnisveitur ( Facebook, Netflix, o.fl. )
  • Tölvupóstar og rafræn samskipti (Google)

Kennsluaðferðir og námsefni:
Kennslan verður einstaklingsmiðuð og því sniðin að þörfum hvers og eins en almenn atriði kynnt að hluta til fyrir alla á sama tíma.

Kennt verður í föndurherberginu í Álfagerði  (félagsheimili eldri borgara)- Námskeið fyrir 60 ára og eldri þar sem kennt verður á snjalltæki s.s. spjaldtölvur og snjallsíma.

Tímasetning: Námskeiðið er fjögur skipti, dagana 24., 25., 28. og 29. nóvember kl. 10-12.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Leiðbeinendur: Anna Albertsdóttir/Sólveig Friðriksdóttir

Skráning: www.mss.is

ATH: Aðeins eru 8 pláss á námskeiðinu - eftir það er tekið við skráningum á biðlista.