Skáknámskeið í Borunni fyrir 10-99ára

Námskeiðið fer fram dagana 18. og 19. maí í félagsmiðstöðinni Borunni.

 

Námskeiðið er frá 18-21

 

Kennari á námskeiðinu er fyrrum landsliðsþjálfari Ástralíu,

Birkir Karl Sigurðsson, margfaldur Íslandsmeistari í skák og heimsmeistari ungmenna í skák í liði Salaskóla árið 2007.

Birkir Karl er með skákkennararéttindi frá Alþjóðlega skáksambandinu FIDE

Námskeiðsgjald er 4000 kr sem greitt er á staðnum.

skráning er hér eða með því að senda póst á Gudmundurs@vogar.is

 

Skráningafrestur er til mánudagsins 16. maí.

 

Rannsóknir hafa sýnt að skákiðkun bætir námsárangur barna, þjálfar rökhugsun og eykur minni þeirra. Sjá nánar á

http://www.chessity.com/blog/431/The_Benefits_of_Chess

Námskeiðið er fyrir alla áhugasama krakka en gott er að kunna mannganginn í skák.

Hlökkum til að sjá ykkur!