Ljósin á jólatrénu tendruð

Fyrsta sunnudag í aðventu, þann 1. desember næstkomandi, verða ljósin á jólatrénu okkar í Vogum tendruð og verður það gert kl. 17.00 í Aragerði. Séra Bolli Pétur mun fara með stutta hugvekju, kirkjukórinn syngja og samningar hafa náðst við fulltrúa jólasveinanna að senda okkur einhverja slíka svona fyrirfram. Allir velkomnir.