Göngum í skólann 2024

Nú styttist í að skólar landsins hefji göngu sína að nýju eftir sumarleyfi. Það sama á við um verkefnið Göngum í skólann www.gongumiskolann sem verður sett í átjánda sinn miðvikudaginn 4. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 2. október (www.iwalktoschool.org). Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt. Fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls skráðu 84 skólar sig til leiks árið 2023.