Epladagur

Hinn árlegi Epladagur MInja- og sögufélags Vatnsleysustrandar verður haldinn fyrsta sunnudag í aðventu, 1. desember, frá klukkan 12:00-15:00

Í Norðurkoti verður jólalegt að vanda og við skoðum gamalt jólaskraut, fræðumst um jólin í gamla daga, maulum á jólagóðgæti en umfram allt, hittumst og eigum saman notalega stund. 

Í Skjaldbreið ætlum við að endurvekja kertadýfingar og fá yfir okkur jólaandann undir fallegum jólatónum. Vonumst til að sjá sem flesta.