Reykjanes er þekkt fyrir stórbrotna náttúru, háhitasvæði með tilheyrandi hverum og gufustrókum, hraunbreiður og heimsþekkt fuglabjörg. Hér eru miklar og fagrar strendur, ólgandi brim, gamlar kirkjur hver með sinn sjarma og sína gömlu sögu, gamlar menjar og sel. Ekki má gleyma söfnunum á Suðurnesjum sem spila stórt og geysilega veigamikið hlutverk í menningu Suðurnesjamanna. Á Reykjanesi er margt að skoða.
Hér má nálgast myndbönd sem varpa ljósi á hluta þess sem Reykjanesið hefur upp á bjóða. Myndirnar eru þrjár; um náttúruna, orkuna og söguna.
Jafnframt má sjá fjölda loftmynda sem Oddgeir Karlsson ljósmyndari tók víðsvegar um Sveitarfélagið Voga, milli fjalla og fjöru.
Ljósmyndir úr Vogum
Náttúra
Orka
Saga