Litir: E B H S
Leturstærð: Stór Stærri Stærst
Um miðjan ágúst 2011 breyttust almenningssamgöngur. Þá var tekin upp sú nýbreytni að fjórum sinnum á dag, alla virka daga, fer bíll frá Gamla Pósthúsinu upp að mislægu gatnamótum. Ferðir úr Vogum eru skipulagðar í fullu samráði við SBK og áætlanir þeirra. Bíll úr Vogum bíður hámark fimm mínútur á vegamótum. Eins og er þá er ekki hægt að bíða lengur. Frítt er í ferðir til Keflavíkur, Sandgerðis og Garðs. Sveitarfélagið greiðir niður fargjöld til höfuðborgarsvæðisins. Kort, 20 miða, er hægt að kaupa á bæjarskrifstofunni. Kort sem keypt eru annars staðar eru ekki greidd niður.
Hér má sjá áætlun S500 Vogastrætó sem tók gildi 1. mars 2013
Samgönguáætlun REX fyrir Suðurnes gildir frá maí 2013