26. ágúst 2010
Fundur nr. 19
Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
19. fundur
19. fundur Frístunda- og menningarnefndar Sveitarfélagsins Voga haldinn í Félagsmiðstöðinni við Hafnargötu miðvikudaginn 25.08.2010 kl. 19:30.
Mættir fundarmenn: Björn G. Sæbjörnsson, Erla Lúðvíksdóttir sem ritaði fundinn, Símon Jóhannsson, Ragnar Davíð Riordan, Ingþór Guðmundsson Tinna Hallgrímsdóttir Frístunda – og menningarfulltrúi sat einnig fundinn.
1. Starfsemi íþróttahúss.
Frístunda – og menningarfulltrúi kynnti starfssemi og opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar fyrir veturinn. Nefndin var í meginatriðum ánægð með opnunartíma miðstöðvarinnar en hluti nefndarinnar hefði viljað sjá opnunartíma klukkutíma lengur. Ragnar Riordan vék af fundi.
2. Fjölskyldudagurinn.
Björn fór yfir dagskrána. Nefndin setti fram nokkra punkta um hvað betur mætti fara næsta ár. Fmn þakkar Tinnu kærlega fyrir vel heppnaðan og frábæran dag.
Liður 2 verður tekin aftur fyrir á næsta fundi með nýjum Frístunda og menningafulltrúa.
3. Haustdagskrá og starfsemi félagsmiðstöðvar.
Tinna fór yfir drög að dagskrá vetrarins og kynnti nýja starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar. Lítilsháttar breyting verður á opnunartíma. Fmn vonast til að það verði tekið tillit til óskar nefndarinnar í næstu fjárhagsáætlun börnum og ungmennum Sveitarfélagsins til heilla.
4. Haustdagskrá og starfssemi í Álfagerði.
Fmn leggur til að það verði gerð könnun hjá eldri borgurum Sveitarfélagsins og hvernig þeir vilji hafa opnun og starfssemi hússins, kanna hvort áhugi sé fyrir hjá þessum hópi að hafa meira aðgengi að sameiginlegri aðstöðu, t.d eldhúsi og frístundaherbergi. Núverandi frístundafulltrúi útbýr og afhendir könnunina. Niðurstöður verða skoðaðar á næsta fundi.
5. Útleiguhúsnæði fyrir eldriborgara eða aðra sem vilja lagfæra bíla báta eða annað slíkt.
Afgreiðslulið 5 er frestað til næsta fundar svo að nefndarmenn geti kynnt sér málið betur.
6. Tjaldstæði.
Fmn leggur til að farið verði að stað skipulagningu og staðsetningu á tjaldstæði.
7. Gjörningahátíð í október.
Frístundafulltrúi kynnti gjörningahátíðina sem verður haldin 16 október í samstarfi við Hlöðuna. Dagskráin verður kynnt betur á næsta fundi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21:30
Björn G. Sæbjörnsson Erla Lúðvíksdóttir
Símon Jóhannsson Tinna Hallgrímsdóttir
Ragnar Davíð Riordan Ingþór Guðmundsson
Til baka