27. júlí 2010
Fundur nr. 23
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar
Sveitarfélagsins Voga
23. fundur
Fundur haldinn í umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga, þriðjudaginn 27. júlí 2010 kl. 18:00 að Iðndal 2.
Mættir eru: Hörður Harðarson, Halldór Arnar Halldórsson, Bergur Viðar Guðbjörnsson, Þorvaldur Örn Árnason og Guðbjörg Theódórsdóttir. Þorvaldur Örn Árnason ritar fundargerð í tölvu.
Bergur yfirgaf fundinn kl. 20.00.
Byggingarmál
1. Fundargerð 6. afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 21.07.2010.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Framkvæmdaleyfi
2. Húsfélagið Iðndal 2 sækir um leyfi fyrir hljóðmön milli Iðndals og Fagradals 14 skv. bréfi dags. 29.06.2010 og uppdrætti Tækniþjónustu SÁ ehf. dags. 25.06.2010.
Framkvæmdin hefur verið kynnt fyrir íbúum Fagradals 14 og Miðdals 13.
Ein ábending barst um að gróðursett verði tré í mönina.
Nefndin samþykkir framkvæmdirnar og veitir framkvæmdaleyfi.
Umhverfismál
3. Umhverfisviðurkenningar sveitarfélagsins.
Nefndin fór yfir fyrirliggjandi gögn og fór í vettvangsskoðun og leggur til eftirfarandi:
Viðurkenningu fyrir gagngerar og smekklegar endurbætur gamals og sögufrægs húss fær Reykjaprent, eigandi Hábæjar. Syðri hluti Hábæjar var byggður 1921 á grunni eldra húss. Þarna var símstöðin í Vogum og þangað kom fyrsta útvarpið í hreppinn 1926. Sagt er að húsið hafi fyllst á sunnudögum þegar fólk af öðrum bæjum dreif að spariklætt til að hlusta á messu. Í Hábæ var sett upp fyrsta verslunin í Vogum árið 1929 og var hún starfrækt í þessu húsi þar til 1968. Hábær var þannig eins konar miðbær Voga hálfa síðustu öld.
Starfsfólk Heilsuleikskólans Suðurvalla fær viðurkenningu fyrir góðar hugmyndir og aðkomu að vel heppnaðri hönnun lóðar leikskólans.
Íbúar Heiðargerðis sunnan Ægisgötu fá viðurkenningu fyrir fallega og snyrtilega götumynd.
Bryndís Petersen og Leifur Jónsson Brekkugötu 23 fá viðurkenningu fyrir fallegan garð og snyrtilegt hús.
Eyrún Antonsdóttir og Sverrir Agnarsson, Aragerði 16, fá viðurkenningu fyrir frumlegan og fjölbreytilegan garð til margra ára.
Sæmundur Þórðarson og Anna María Franksdóttir Stóru-Vatnsleysu fyrir snyrtimennsku og frjóa hugsun í garðskreytingum. Þau hafa hugsað vel um þetta merka útvegsbýli og fornan kirkjustað og miðla þekkingu um sögu staðarins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 22:15.
Til baka