29. júlí 2010
Fundur nr. 18
Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
18. fundur
18. fundur Frístunda- og menningarnefndar Sveitarfélagsins Voga haldinn í Félagsmiðstöðinni við Hafnargötu fimmtudaginn 28.07.2010 kl. 19:30.
Mættir fundarmenn: Björn G. Sæbjörnsson, Erla Lúðvíksdóttir sem ritaði fundinn, Símon Jóhannsson Tinna Hallgrímsdóttir Frístunda – og menningarfulltrúi sat einnig einnig fundinn.
Ragnar Davíð Riordan boðaði forföll, enginn varamaður kom í hans stað, Ingþór Guðmundsson mætti ekki, hann boðaði ekki varamann í sinn stað.
Fjölskyldudagurinn 14. ágúst
Tinna kynnti dagskránna og farið var yfir dagskrá dagsins.
1. Afmæliskaffi Sveitarfélagsins
FMN leggur til að hafa kaffið í Tjarnarsalnum og fá heimamenn til að spila á harmonikku. Tómstundafulltrúi athugar með tilboð í veitingar og mönnun yfir daginn.
2. Opnunartími sundlaugarinnar
Frístunda- og menningarfulltrúi fór yfir opnunartímann og starfsmannamál.
FMN leggur til að frístunda – og menningarfulltrúi skili skýrslu til Bæjarstjóra varðandi fund hennar með starfsfólki íþróttamiðstöðvarinnar og leggi málið í hans hendur.
3. Staða staðgengils frístunda- og menningarfulltrúa.
Frístunda- og menningarfulltrúi fór yfir stöðu mála og útskýrði sína hlið.
FMN er á því að auglýst sé í allar lausar stöður innan Sveitarfélagins.
4. Mönnun og opnun félagsmiðstöðvar í haust.
Frístunda- og menningarfulltrúi mun ráða í stöður félagsmiðstöðvarinnar fyrir veturinn.
FMN leggur til að Frístunda- og menningarfulltrúi geri drög að dagskrá vetrarins með fjölbreyttari dagskrá svo sem klúbbastarfssemi og fleiri nýjungum, og kynni dagskrá félagsmiðstöðvarinnar í skólanum í haust.
FMN leggur til lengdan opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar sem part af öflugu forvarnarstarfi og að forvarnardagurinn verði haldin með þátttöku flestra félagasamtaka í Sveitarfélaginu í nóvember.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21.25.
Björn G. Sæbjörnsson Erla Lúðvíksdóttir
Símon Jóhannsson Tinna Hallgrímsdóttir
Til baka