13. júlí 2010
Fundur nr. 22
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar
Sveitarfélagsins Voga
22. fundur
Fundur haldinn í umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga, þriðjudaginn 13. júlí 2010 kl. 18:00 að Iðndal 2.
Mættir eru: Hörður Harðarson, Arna Þorsteinsdóttir , Bergur Viðar Guðbergsson, Þorvaldur Örn Árnason og Guðbjörg Theódórsdóttir. Einnig situr fundinn Sigurður H. Valtýsson skipulags- og byggingarfulltrúi. Þorvaldur Örn Árnason ritar fundargerð í tölvu.
Formaður leitar afbrigða með að taka eitt mál á dagskrá sem er verkaskipting nefndarinnar og er samþykkt að taka það upp sem 1. mál.
1. Tillaga er gerð um Halldór Arnar sem varaformann og Guðbjörgu sem ritara. Samþykkt.
Byggingarmál
2. Fundargerðir 4. og 5. afgreiðslufunda skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 16.05.2010 og 23.06.2010.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
3. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar sækir um leyfi til að leggja vegslóða að fyrirhuguðu skemmustæði að Kálfatjörn og til að keyra fyllingarefni í grunn undir skemmuna skv. bréfi dags. 08.07.2010.
Nefndin ákveður að leita eftir meðmælum Skipulagsstofnunar með veitingu leyfisins skv. 3. tl. bráðabirgðaákv. skipulags- og byggingarlaga nr.73/1997.
Skipulagsmál
4. Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Suðvesturlínur. Óskað umsagnar sveitarfélagsins skv. bréfi frá Hafnarfjarðarbæ dags. 15.06.2010.
Nefndin gerir eftirfarandi athugasemd: Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga er gert ráð fyrir jarðstreng, hraðlest, reiðstíg og hjólreiðastíg samsíða Reykjanesbraut sem ekki eiga sér neitt framhald í aðalskipulagstillögu Hafnarfjarðar.
Framkvæmdaleyfi
5. Húsfélagið Iðndal 2 sækir um leyfi fyrir hljóðmön milli Iðndals og Fagradals 14 skv. bréfi dags. 29.06.2010 og uppdrætti Tækniþjónustu SÁ ehf. dags. 25.06.2010.
Nefndin ákveður að kynna framkvæmdina fyrir íbúum Fagradals 14 og Miðdals 13 áður en framkvæmdaleyfi verður afgreitt.
Umhverfismál
6. Umhverfisviðurkenningar sveitarfélagsins.
Samþykkt er að auglýsa eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga og frestur verði gefinn til 26. júlí.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 20.15.
Til baka