9. júní 2010
Fundur nr. 48
48. fundur fræðslunefndar Sveitarfélagsins Voga haldinn þriðjudaginn 7. júní 2010 í leikskólanum Suðurvöllum
Mættir: Áshildur Linnet, Bergur Álfþórsson, Sigurður Ágústsson, Jóhanna Lára Guðjónsdóttir, Svava Bogadóttir, Þorvaldur Árnason, Oddný Baldvinsdóttir, María Hermannsdóttir og Erla Lúðvíksdóttir sem jafnframt ritar fundargerð í tölvu
Fundur settur kl. 18:05
1. Starfsmannamál leikskóla
María fór yfir starfsmannamál, lagði fram minnisblað yfir stöðugildi árið 2010 – 2011.
2. Reglur um úthlutun leikskólavistar
María fór yfir reglurnar og lagði til að skýrð verði ákvæði um uppsagnarfrest og hámarksvistun.
Samþykkt að gagnkvæmur uppsagnarfrestur á leikskólaplássi verði 30 dagar og skal miðað við að uppsögn skilist fyrir 1 eða 15 hvers mánaðar. Felld skuli niður ákvæði um hámarksvistun.
Endurskoða þarf reglurnar í heild, frekari umræðum frestað til næsta fundar.
3. Starfsmannamál grunnskóla
Svava fer yfir starfsmannamál. Næsta vetur verða 27 kennarar við skólann. Kennarar með réttindi eða annað háskólanám eru 24.
Fræðslunefnd fagnar háu hlutfalli réttindakennara og háskólamenntaðra kennara.
Bókasafns- og upplýsingafræðingur hefur verið ráðinn til starfa.
4. Tónlistarskóli í Stóru Vogaskóla
Tónlistarkennari hefur verið ráðinn til starfa. Fræðslunefnd í samstarfi við skólastjóra mun vinna að því að formfesta stofnun tónlistarskóla eftir því sem lög og reglur gera ráð fyrir.
5. Skólaslit og viðurkenningar til nemenda
Fræðslunefnd fagnar sýnilegum árangri nemenda við skólaslit Stóru-Vogaskóla þann 3 júní síðastliðinn.
Niðurstöður skólavogarinnar hafa borist, umræðum um niðurstöður frestað til næsta fundar.
6. Lóð leikskólans
Mikil ánægja meðal starfsmanna og barna. Fræðslunefnd óskar leiksólanum innilega til hamingju með lóðina og þakkar starfsmönnum kærlega fyrir framlag þerra við hönnun hennar.
Nefndarmenn fara í kynnisferð um lóðina og prófa leiktækin.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 19:15
Til baka