3. mars 2010
Fundur nr. 45
Fræðslunefndar Sveitarfélagsins Voga mánudaginn 15. febrúar 2010 á bókasafni Stóru-Vogaskóla kl. 18:10
Mættir: Áshildur Linnet, Brynhildur Hafsteinsdóttir, Sigurður Ágústsson, Íris Bettý Alfreðsdóttir, María Hermannsdóttir, Oddný Baldursdóttir, Svava Bogadóttir, Magnús Steingrímsson og Bergur Álfþórsson sem jafnframt ritar fundargerð í tölvu.
Fundur settur kl. 18:05
1. Ársskýrsla leikskóla 2009Ársskýrslan lögð fram og rædd. Fræðslunefnd þakkar fyrir greinargóðar upplýsingar um starf leikskóla á árinu 2009
2. Morgunverður í leikskólaLeikskólastjóri gerði grein fyrir breittu fyrirkomulagi á morgunverði en nú er hafragrautur í morgunmat alla morgna ásamt ýmsu meðlæti.
Fulltrúar leikskóla víkja af fundi kl 18:32
Fulltrúar grunnskóla mæta til fundar kl 18:35
3. Fjárhagsleg endurskipulagning grunnskóla
Skólastjóri fór yfir fyrirhugaðar aðhaldsaðgerðir.
4. Fundarboð og forföllFormaður fræðslunefndar lætur færa til bókar:
Formaður fræðslunefndar harmar umræðu bæjarfulltrúans Írisar Bettýar Alfreðsdóttur á 44. fundi bæjarstjórnar þann 12. desember síðastliðinn. Á fundinum gaf bæjarfulltrúinn í skyn að formaður fræðslunefndar stæði í vegi fyrir því að varafulltrúar H-lista væru boðaðir til fundar. Þetta er með öllu rangt. Ástæða þess að ekki var boðaður varamaður fyrir fulltrúa H-lista á 44. fund fræðslunefndar var að fulltrúinn, Sigurður Ágústsson, afboðaði sig ekki símleiðis eins og tekið var fram í fundarboði. Formaður telur það vera menntamálum sveitarfélagsins til framdráttar að sem flestir hafi aðkomu að málaflokknum og því aldrei hvarflað að formanni að koma í veg fyrir þátttöku fólks á þessum vettvangi. Jafnframt er rétt að vekja athygli á því að samkvæmt sveitarstjórnarlögum er nefndarmönnum skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Hingað til hefur ekki tíðkast að kanna lögmæti forfalla, heldur varamenn boðaðir í samstarfi formanns viðkomandi nefndar og hins forfallaða nefndarmanns.
Formaður harmar jafnframt að bæjarfulltrúinn skuli ekki hafa rætt meinta óánægju sína við formann persónulega, eða á fundi fræðslunefndar, heldur vegið að heiðri formanns með þeim hætti sem gert var á bæjarstjórnarfundi þar sem bæjarfulltrúa mátti vera ljóst að formaður fræðslunefndar gæti ekki svarað fyrir sig enda ekki með seturétt á umræddum bæjarstjórnarfundi. Til að tryggja sátt í boðun varamanna leggur formaður eftirfarandi tillögu fram við fundinn: „Fulltrúar í fræðslunefnd sveitarfélagsins Voga sem af einhverjum ástæðum forfallast á fundi skulu boða varamann sinn til setu á fundinum en jafnframt tilkynna formanni um forföll sín.“
Tillagan samþykkt með 3 atkvæðum, tveir á móti.
Íris Bettý Alfreðsdóttir vill að fram komi að hún hafi gert athugasemd strax við formann fræðslunefndar eftir umræddann fund.
Fulltrúar H-lista lýsa yfir að þeir telji það í verkahring formanns fræðslunefndar að boða fræðslunefndarfundi og ef fulltrúi komist ekki þá boða varafulltrúa.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl 19:15
Til baka