19. janúar 2010
Fundur nr. 18
Fundur haldinn í umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga, þriðjudaginn 19. janúar 2010 kl. 18:00 að Iðndal 2.
Mættir eru: Þorvaldur Örn Árnason, Oktavía Ragnarsdóttir, Hörður Harðarson, Guðbjörg Theódórsdóttir og Þórður K. Guðmundsson. Einnig situr fundinn Sigurður H. Valtýsson skipulags- og byggingarfulltrúi. Hörður Harðarson ritar fundargerð í tölvu.
Byggingarleyfi
1. Tjarnargata 1b og Hábær 1, Vogum. Reyndarteikningar, breyttir aðaluppdrættir GLÁMU-KÍM arkitekta, breytingardagssetning 09.01.2010, breyting frá samþykktum aðaluppdráttum frá 21. apríl 2009.
Um er að ræða reyndarteikningar að loknum byggingarframkvæmdum. Breytt er m.a. skipulagi lóðar, gluggum íbúðarhúss, gluggum og hurðum geymsluskúrs ásamt öðru smálegu.
Samþykkt, samræmist lögum nr. 73/1997.
Framkvæmdaleyfi
2. Stofnfiskur hf. sækir um framkvæmdaleyfi til borunar eftir sjóvatni í landi eldisstöðvar sinnar við Vogavík, skv. bréfi dags. 07.01.2010 og afstöðumynd.
Samþykkt, samræmist lögum nr. 73/1997.
Ýmis mál frá bæjarráði til upplýsingar fyrir nefndina
3. Skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni. Álit Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2009.
Álitið lagt fram til upplýsingar.
4. Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Voga, ásamt viðauka um embættisfærslur skipulags- og byggingarfulltrúa.
Samþykktin lögð fram til upplýsingar.
Nefndin fagnar tímabærum breytingum á samþykktinni.
Skipulagsmál
5. Deiliskipulag, Hábær og Stóru-Vogaskóli, Kálfatjörn og Þórustaðir.
Fyrirhuguð vinna við breytingu á deiliskipulagi við Akurgerði, Stóru-Vogaskóla og Vogatjörn rædd. Nefndin felur byggingarfulltrúa að kanna hug landeiganda um landnotkun og í framhaldi fela skipulagsráðgjöfum að hefja vinnu við deiliskipulagið.
Fyrirhuguð vinna við deiliskipulag á landi í og við Kálfatjörn og Þórustaði.
Nefndin leggur til að byggingarfulltrúi kanni hvaða hugmyndir hagsmunaaðilar hafa um framtíðarnotkun svæðisins.
Umhverfismál
6. Fráveituframkvæmdir.
Meirhluti nefndarinnar fagnar því að undirbúningur að fráveituframkvæmdum sé við það að hefjast.
Nefndin ræðir hönnunarforsendur fráveitunnar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:50
Til baka