30. janúar 2019
Fundur nr. 153
153.fundur
Bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga
haldinn á bæjarskrifstofu,
30. janúar 2019 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Ingþór Guðmundsson, Bergur Álfþórsson, Áshildur Linnet, Birgir Örn Ólafsson, Björn Sæbjörnsson, Sigurpáll Árnason, Jóngeir Hjörvar Hlinason og Einar Kristjánsson.
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 267 - 1812006F
Fundargerð 267. fundar bæjarráðs er lögð fram á 153. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Forseti gefur orðið laust um fundargerðina.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs á einstökum liðum fundargerðarinnar, nema annað sé tekið fram í bókun undir viðkomandi máli.
Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
1.1 1812002 - Ályktun, þakkir og niðurstöður frá málþingi ungmennaráðs Grindavíkur, Öryggi okkar mál!
Ungmennaráð Grindavíkur sendir þakkarbréf í kjölfar málþings.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Ályktunin, niðurstöðurnar og þakkarbréfið lögð fram.
1.2 1812012 - Vinnumansal og kjör erlends starfsfólks
Erindi framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 13.12.2018, um vinnumansal og kjör erlends starfsfólks.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram.
1.3 1812016 - Ósk um viðræður um lóðina Jónsvör 1
Erindi forsvarsmanns Hofsholts ehf. um lóðina Jónsvör 1
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið, og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um frekari úrvinnslu málsins.
1.4 1812017 - Ósk um nýtingu byggðakvóta.
Erindi forsvarsmanns Hofsholts ehf. um nýtingu byggðakvóta sveitarfélagsins, og setningu sérreglna þar að lútandi.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra áframhaldandi úrvinnslu málsins, þ.m.t. að sækja um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta.
1.5 1812001 - Trúnaðarmál (fasteignagjöld)
Erindi frá fagaðila með beiðni um ívilnun fasteignagjalda
Afgreiðsla bæjarráðs:
Skráð í trúnaðarmálabók.
1.6 1811019 - Umsókn um lóð
Daníel Sigurðsson sækir um lóðina Breiðuholt 1. Fyrirliggjandi eru áskilin gögn frá lánastofnun sem staðfestir greiðslumat umsækjanda.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir umsóknina.
1.7 1812015 - Erindi frá umhverfisteymi Stóru-Vogaskóla.
Erindi umhverfisteymis Stóru-Vogaskóla dags. í nóvember 2018.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram. Vísað til umfjöllunar í Umhverfis- og skipulagsnefnd.
Til máls tók: JHH
1.8 1811022 - Ráðning menningarfulltrúa 2018
Tillaga til bæjarráðs um ráðningu menningarfulltrúa
Minnisblað bæjarstjóra dags. 17.12.2018 lagt fram, ásamt tillögu.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að ráða Daníel Arason í starf menningarfulltrúa. Samþykkt samhljóða.
Til máls tók JHH.
Bæjarstjórn óskar nýráðnum menningarfulltrúa velfarnaðar í störfum sínum.
1.9 1811023 - Ráðning íþrótta-og tómstundafulltrúa 2018
Tillaga til bæjarráðs um ráðningu íþrótta- og tómstundafulltrúa
Minnisblað bæjarstjóra dags. 17.11.2018 ásamt tillögu.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að ráða Matthías Frey Matthíasson í starf íþrótta- og tómstundafulltrúa. Samþykkt samhljóða.
Til máls tók JHH.
Bæjarstjórn óskar nýráðnum íþrótta- og tómstundafulltrúa velfarnaðar í störfum sínum.
1.10 1810007 - Reglur um Frístundastyrk
Drög að endurskoðuðum og einfölduðum reglum um frístundastyrk sveitarfélagsins (fyrir 18 ára og yngri og 67 ára og eldri).
Afgreiðsla bæjarráðs:
Drögin lögð fram. Afgreiðslu málsins frestað.
1.11 1812009 - Umsókn um starfsleyfi.
Beiðni Sýslumannsins í Keflavík um umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi.
Sýslumaðurinn í Keflavík sendir til umsagnar umsókn Randza production slf. um starfsleyfi fyrir veitingastaðinn Jón Sterka í Iðndal 2, Vogum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leiti.
1.12 1812010 - Til umsagnar 409. mál frá nefndasviði Alþingis
Alþingi sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um áætlun fyrir árin 2019 - 2022 umaðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess, 409. mál
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.
1.13 1812021 - Frá nefndasviði Alþingis - 443. mál til umsagnar.
Alþingi sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi, 443. mál
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.
1.14 1812020 - Frá nefndasviði Alþingis - 417. mál til umsagnar.
Alþingi sendir til umsaganar frumvarp til laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, 417. mál
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.
1.15 - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 48
Fundargerð 48. afgreiðslufundar byggingafulltrúa er lögð fram á 267. fundi bæjarráðs.
1.16 1802010 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2018.
Fundargerð 865. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
1.17 1801019 - Fundargerðir Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja 2018.
Fundargerð 498. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
1.18 1811013 - Fundir Reykjanes fólkvangs 2018.
Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 28.11.2018
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
1.19 1802019 - Fundargerðir Heklunnar, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja 2018.
Fundargerð 68. fundar stjórnar Heklunnar, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
1.20 1703004 - Fundargerðir Félags eldri borgara á Suðurnesjum.
Ályktun fundargerðar Félags eldri borgara á Suðurnesjum frá 28.11.2018, um fasteignaskatta.
Afgreiðsla bæjarráðs:
1.21 1604006 - Fundargerðir Öldungaráðs Suðurnesja.
Fundargerð stjórnar Öldungaráðs Suðurnesja dags.3.12.2018, ásamt fylgigögnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin ásamt fylgigögnunum lögð fram.
1.22 1801009 - Fundargerðir Fjölskyldu-og velferðarnefndar 2018.
Fundargerð 5. fundar Fjölskyldu- og velferðarnefndar, ásamt fylgigögnum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun á styrk til greiðslu lögmannskostnaðar, sbr. 1. mál fundargerðarinnar. Fundargerðin lögð fram.
1.23 1602060 - Fundargerðir Svæðisskipulags Suðurnesja
Fundargerð 16. fundar stjórnar Svæðisskipulags Suðurnesja
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
1.24 1803037 - Fundir Reykjanes jarðvangs 2018
Fundargerð 48. fundar stjórnar Reykjanes Geopark
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
2. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 268 - 1901002F
Fundargerð 268. fundar bæjarráðs er lögð fram á 153. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Forseti gefur orðið laust um fundargerðina.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs á einstökum liðum fundargerðarinnar, nema annað sé tekið fram í bókun undir viðkomandi máli.
Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
2.1 1812030 - Ársskýrsla Persónuverndar 2017
Persónuvernd sendir ársskýrslu stofnunarinnar fyrir 2017 til fróðleiks.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.
2.2 1901003 - Strandahlaup Þróttar.
Stjórn UMFÞ tilkynnir að félagið muni ekki sjá um Strandahlaup Þróttar, og býður sveitarfélaginu að annast umsjón með viðburðinum.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð harmar að UMFÞ hyggist ekki standa að hlaupinu. Sveitarfélagið hyggst hins vegar ekki standa að framkvæmd þess.
2.3 1506017 - Nýtt vatnsból sveitarfélagsins
Svar HS Veitna við bréfi sveitarfélagsins varðandi vatnstöku innan Heiðarlands Vogajarða
Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að áframhaldandi úrvinnslu málsins og óska eftir viðræðum við meðeigendur sveitarfélagsins að Heiðarlandi Vogajarða um vatnstökuréttindin.
2.4 1812028 - Tilnefning í vatnasvæðanefnd.
Erindi Umhverfisstofnunar, beiðni um tilnefningu fulltrúa sveitarfelagsins í vatnasvæðanefnd.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Áshildi Linnet, formann Umhverfis- og skipulagsnefndar sem fulltrúa Sveitarfélagsins Voga. Til vara verður Friðrik V. Árnason, varaformaður Umhverfis- og skipulagsnefndar.
2.5 1811037 - Ráðning bæjarritara
Minnisblað ásamt tillögu bæjarstjóra um ráðningu bæjarritara
Afgreiðsla bæjarráðs:
Alls bárust 5 umsóknir um starf bæjarritara. Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að ráða Einar Kristjánsson, viðskiptafræðing MBA í starf bæjarritara. Samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn óskar nýráðnum bæjarritara velfarnaðar í störfum sínum.
Til máls tók JHH, BBÁ, BS.
2.6 1810007 - Reglur um Frístundastyrk
Tillaga um endurskoðaðar reglur vegna frístundastyrks, sem gildi bæði fyrir börn og eldri borgara.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Tillagan lögð fram, bæjarráð leggur til að tillagan í endanlegri mynd verði staðfest á næsta fundi bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir reglurnar sem eru lagðar fram í endanlegri útgáfu á fundinum.
Til máls tóku: JHH, BBÁ, BS.
2.7 1812024 - Deiliskipulag við Krýsuvíkurberg í Hafnarfirði.
Hafnarfjarðarbær sendir til umsagnar tillögu að deiliskipulagi við Krísuvíkurberg í Hafnarfirði
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.
2.8 1812032 - Beiðni um umsögn vegna endurskoðun kosningalaga.
Starfshópur um endurskoðun kosningalaga óskar eftir athugasemdum
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram. Vísað til umsagnar hjá formanni Kjörnefndar.
2.9 1803022 - Fundargerðir Þekkingarseturs Suðurnesja 2018.
Fundargerð 28. fundar stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
2.10 1802019 - Fundargerðir Heklunnar, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja 2018.
Fundargerð 69. fundar stjórnar Heklunnar, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
3. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 269 - 1901003F
Fundargerð 269. fundar bæjarráðs er lögð fram á 153. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Forseti gefur orðið laust um fundargerðina.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs á einstökum liðum fundargerðarinnar, nema annað sé tekið fram í bókun undir viðkomandi máli.
Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
3.1 1811033 - Breiðuholt 12-14. Umsókn um lóð.
Tító ehf. sækir um parhúsalóðina Breiðuholt 12 - 14
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir umsóknina.
3.2 1811032 - Breiðuholt 16-18. Umsókn um lóð.
Tító ehf. sækir um parhúsalóðina Breiðuholt 16 - 18
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir umsóknina.
3.3 1811034 - Breiðuholt 20-22. Umsókn um lóð.
Tító ehf. sækir um parhúsalóðina Breiðuholt 20 - 22
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir umsóknina.
3.4 1901008 - Gjaldskrá 2019
Viðbótarákvæði vegna móttöku og förgunar úrgangs í Vogahöfn, í samræmi við ábendingu frá Umhverfisstofnun
Lagt fram erindi forstöðumanns umhverfis og eigna, þar sem vísað er til ábendinga Umhverfisstofnunar varðandi ákvæði í gjaldskrá um losun og úrgangs í Vogahöfn.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi gjaldskrárbreytingu:
18. grein.
Fiskiskip, skemmtibátar sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega, herskip, hjálparskip í flota, skip sem þjónusta fiskeldi og skip í ríkiseign eða ríkisrekstri sem nýtt eru í þágu hins opinbera, sem koma til hafnar skulu greiða eftirfarandi gjald fyrirmóttöku og meðhöndlun á úrgangi frá skipum:
Skip minni en 10 BT kr./mán. 2.400.-
Skip 10 - 100 BT kr./mán. 4.800.-
Skip stærri en 100 BT kr./mán. 8.400.-
Sorpeyðingargjald er innifalið í ofangreindum verðum.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn staðfestir tillögu í endanlegri mynd sem lögð fram á fundinum.
Til máls tók: SÁ.
3.5 1901011 - Hámarkshraði og umferðamerkingar
Tillaga um umferðamerkingar á Miðbæjarsvæði ásamt tillögu um breytingu hámarkshraða á Vogaafleggjara
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra með tillögu um umferðamerkingar og hámarkshraða á miðbæjarsvæði og Vogabraut.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir framlagða tillöguna og felur bæjarstjóra að sækja um breytingarnar til viðkomandi yfirvalda. Samþykkt samhljóða.
JHH leggur fram tillögu um að málinu verði vísað til umfjöllunar í Umhverfis- og skipulagsnefnd.
Tillagan er felld með þremur atkvæðum gegn fjórum.
Til máls tók: ÁL, JHH, BS, BBÁ.
3.6 1901012 - Hitaveita á Vatnsleysuströnd.
Erindi Birgis Þórarinssonar í Minna-Knarrarnesi um að kannað verði hvort unnt sé að samnýta skurði fyrir ljósleiðara til lagningu hitaveitu á Vatnsleysuströnd
Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram. Fyrir liggur að nú þegar liggur stofnstrengur ljóðsleiðara um Vatnsleysuströnd, svo einungis yrði unnt að nýta skurði fyrir heimtaugar. Bæjarstjóra falið að svara bréfritara.
3.7 1705022 - Stjórnsýsla sveitarfélagsins
Tillaga um uppskiptingu Umhverfis- og skipulagsnefnda í Umhverfisnefnd og Skipulagsnefnd
Lagt fram minnisblað ásamt fylgigögnum varðandi áformaða uppskiptingu Umhverfis- og skipulagsnefndar í Umhverfisnefnd og Skipulagsnefnd.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram. Bæjarstjóra falið að leggja fram erindisbréf nýrra nefnda með fundarboði næsta fundar bæjarstjórnar. Breyting á samþykktum sveitarfélagsins verði tekin til fyrri umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar.
3.8 1701030 - Umsjón með knattspyrnuvöllum
Tillaga um endurnýjun samnings við Knattspyrnufélagið Voga um umsjón með knattspyrnuvöllum sveitarfélagsins
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 21.1.2019. Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að leggja fram drög að samkomulagi aðila til samþykktar á næsta fundi bæjarstjórnar.
3.9 - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 46
Fundargerð 46. afgreiðslufundar byggingafulltrúa er lögð fram á 268. fundi bæjarráðs
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
3.10 1604006 - Fundargerðir Öldungaráðs Suðurnesja.
Fundargerð Öldungaráðs Suðurnesja 7.1.2019
Fundargerðin lögð fram.
3.11 1901014 - Fundargerðir Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja 2019.
Fundargerð 499. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
4. Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 107 - 1901001F
Fundargerð 107. fundar Umhverfis- og skipulagsnefndar er lögð fram á 153. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Forseti gefur orðið laust um fundargerðina.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs á einstökum liðum fundargerðarinnar, nema annað sé tekið fram í bókun undir viðkomandi máli.
Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
4.1 1810076 - Hvassahraun-frístundabyggð. Breyting á aðal- og deiliskipulagi
Tölvupóstur Landslags ehf. dags. 23.1.2018 fyrir hönd landeiganda Loran ehf. þar sem óskað er eftir að gerð verði breyting á gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins, sem felst í því að heimila gististarfsemi sem fellur undir atvinnustarfsemi í frístundabyggðinni í Hvassahrauni. Einnig er óskað eftir að ferill breytingar á deiliskipulagi verði tekinn upp að nýju. Frestað mál frá 105. fundi nefndarinnar.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar:
Samþykkt að heimila að unnin verði tillaga að breytingu á aðalskipulagi í samræmi við erindið ásamt breytingu á deiliskipulagi.
Til máls tóku: JHH, ÁL.
4.2 1412019 - Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024
Tillaga að breytingu á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 ásamt umhverfisskýrslu, dags. desember 2018. Breytingin snýr að að afmörkun vatnsverndarsvæðis í Reykjanesbæ og Sveitarfélaginu Vogum og nýs flugbrautarkerfis Keflavíkurflugvallar.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar:
Samþykkt er að tillagan verði auglýst.
5. Sameining Kölku og Sorpu - 1706027
Tillaga stjórnar Kölku um að aðildarsveitarfélög Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja taki afstöðu til sameiningar Kölku og Sorpu. Jafnframt tilboð Reykjanesbæjar um að sveitarfélagið gerist aðili að samkomulagi við Hauk Björnsson, ráðgjafa.
Bæjarstjórn samþykkir framkomið tilboð frá Reykjanesbæ um aðild að samningi um ráðgjöf við Sperora ehf.
Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að fresta því að taka afstöðu til hugmynda um sameiningu Sorpu og Kölku, þar til niðurstaða ráðgjafavinnunnar liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
6. Endurskoðun aðalskipulags kjörtímabilið 2018 - 2022 - 1806008
Tillaga um stofnun stýrihóps um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna eftirtalda í stýrihóp um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins:
Frá E-lista:
Aðalmenn: Áshildur Linnet, Friðrik V. Árnason, Ingþór Guðmundsson
Varamenn: Davíð Harðarson, Guðmundur Kristinn Sveinsson, Sindri Jens Freysson.
Frá D-lista:
Aðalmenn: Andri Rúnar Sigurðsson, Björn Sæbjörnsson
Varamenn: Sigurpáll Árnason, Kristinn Benediktsson
Frá L-lista:
Aðalmaður: Gísli Stefánsson
Varamaður: Kristinn Björgvinsson
Bæjarstjórn kýs Áshildi Linnet sem formann, og Ingþór Guðmundsson sem varaformann.
Stýrihópnum falið að koma með tillögu að vinnutilhögun ásamt fyrirkomulagi um vinnu stýrihópsins til framlagningar og samþykktar á næsta fundi bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
7. Stjórnsýsla sveitarfélagsins - 1705022
Tillaga um uppskiptingu Umhverfis- og skipulagsnefndar í Umhverfisnefnd og Skipulagsnefnd. Drög að erindisbréfum nýrra nefnda.
Bæjarstjórn samþykkir að settar verði á stofn Skipulagsnefnd og Umhverfisnefnd, sem leysi af hólmi Umhverfis- og skipulagsnefnd.
Bæajárstjórn samþykkir jafnframt að fresta afgreiðslu skipunarbréfa hinna nýju nefnda á næsta fundi bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: IG, ÁL, ÁE.
8. Endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins Voga - 1303038
Tillaga um breytingu samþykkta v/ uppskiptingu Umhverfis- og skipulagsnefndar í Skipulagsnefnd og Umhverfisnefnd. Tillaga um breytingu samþykkta v/ Frístunda- og menningarnefndar (bæta við sem fastanefnd), sem og að fella brott ákvæði um búfjáreftirlitsmann. Bætt við kafla um ritun fundargerða.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra með tillögum um breytingum á samþykktum sveitarfélagsins.
Lagt fram til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu til síðari umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar.
Til máls tóku: IG, JHH.
9. Menningarmiðstöð - tillaga - 1901024
Jóngeir H. Hlinason, bæjarfulltrúi L-listans leggur fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að Sveitarfélagið Vogar kanni með kaup á fasteigninni Hafnargötu 15 (Sólheimum) sem nú er til sölu með því markmiði að húsið verði nýtt sem fræðasetur og menningarmiðstöð, ásamt því að þar geti nýráðinn menningarfulltrúi í Sveitarfélaginu Vogum haft aðstöðu sína.
Bergur Álfþórsson leggur til að málinu verði vísað til umfjöllunar í bæjarráði.
Tillagan er samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.
Til máls tóku: IG, JHH, ÁL, BBÁ, BS.
10. Umsagnir um rekstrarleyfi - 1705017
Sýslumaðurinn í Keflavík óskar umsagnar bæjarstjórnar vegna umsóknar Kvenfélagsins Fjólu um tækifærisleyfi v/ þorrablóts, þann 2.2.2019.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við umsóknina fyrir sitt leyti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20
Ingþór Guðmundsson Bergur Álfþórsson
Áshildur Linnet Birgir Örn Ólafsson
Björn Sæbjörnsson Sigurpáll Árnason
Jóngeir Hjörvar Hlinason
Til baka