16. júní 2010
Kvennahlaup ÍSÍ
Laugardaginn 19. júní verður hið árlega kvennahlaup ÍSÍ. Lagt verður af stað frá íþróttamiðstöðinni klukkan 11:00. Skráningargjald er 1250kr. Allir þátttakendur fá bol, verðlaunapening, Egils Kristal og Weetabix. Skráning er hafin í íþróttamiðstöðinni. Frítt verður í sund fyrir þátttakendur að loknu hlaupi.
Íþróttamiðstöðin
Sími 440-6220
Til baka