Hvað er Vistvernd í verki?
Vistvernd í verki er alþjóðlegt umhverfisverkefni fyrir heimili. Markmið verkefnisins er að styðja og hvetja fólk til að taka upp vistvænni lífsstíl skref fyrir skref á þeim hraða sem hver velur sér. Verkefnið er hið eina sinnar tegundar í heiminum svo vitað sé og hafa kannanir sýnt að það skilar miklum og varanlegum árangri í bættri umhverfismeðvitund og hegðun.
Ísland er eitt af þeim 17 löndum sem verkefnið hefur fest rætur í. Alþjóðlegt heiti verkefnisins er GAP, en það stendur fyrir Global Action Plan. Verkefnið er sannkallað grasrótarstarf og fellur því afar vel að áformum stjórnvalda um staðardagskrá 21. Það stuðlar að því að stjórnvöld nái settum markmiðum í umhverfismálum og um vistvænt Ísland.
Hvað gera visthópar?
Vistvernd í verki byggist á hópstarfi þar sem fulltrúar 5 til 8 heimila koma saman til fræðslufunda á 1-2 vikna fresti á 8-10 vikna tímabili. Hverjum hópi fylgir einn leiðbeinandi og allir þátttakendur fá handbók þar sem finna má góð ráð og skrá árangur starfsins. Leiðbeinandi stýrir fyrsta og síðasta fundi en þess á milli starfar hópurinn sjálfstætt en með stuðningi leiðbeinanda.
Í bókinni eru tekin fyrir fimm viðfangsefni; sorp, orka, samgöngur, innkaup og vatn. Fundirnir eru notaðir til að fara yfir ýmis atriði í rekstri heimilisins og til að finna leiðir til úrbóta. Hver fundur er helgaður einu viðfangsefni og tekur að hámarki tvær klukkustundir.
Hvaða hópar?
Nú hafa 2 hópar starfað í Vogum. Í fyrsta hópnum eru 7 fjölskyldur, 5 úr Vogum og tvær af Ströndinni. Þær hittust 7 sinnum og höfðu af því mikið gaman og talsvert gagn; bæði talsverðan sparnað í krónum og aurum auk þess að heimilin valda minna álagi á umhverfið. Það var mjög gaman að hittast og ræða saman og bera saman bækur um heimiliishaldið.
Hóparnir enda starf sitt á því að gera eitthvað saman sem vekur athygli annarra á verkefninu. Fyrsti hópurinn hélt nytjamarkað í Glaðheimum fyrir 2 árum, bæði með gömlu kompudóti og eins nýrri heimilsframleiðslu (skartgripum, listaverkum, vistvænni sápu o.fl.).
Annar hópurinn fékk m.a. sýningu um Vistvernd í verki lánaða og setti upp í matsal Stóru-Vogaskóla.
Nánari upplýsingar veita
Helga Ragnarsdóttir hra(hja)inbox.com s. 424 6724
Þorvaldur Örn Árnason, valdurorn(hja)simnet.is s. 424 6841
Landvernd http://www.landvernd.is/vistvernd/flokkar.asp?flokkur=1012 s. 552 5242
Hér má nálgast grein um vistvæna garðyrkju, eftir Helgu Ragnarsdóttur.
Vistvæn garðyrkja
Mældur árangur
Nú hafa nærri 500 fjölskyldur á Íslandi tekið þátt í verkefninu Vistvernd í verki. Þátttakendur gera mælingar í byrjun og lok þátttökunnar til að athuga neyslumynstur sitt og árangur. Komið hefur í ljós að þeir létta mjög álaginu á umhverfið og spara umtalsverðar fjárhæðir eftir að hafa tekið þátt í verkefninu.
Sorp
Þyngd sorps frá heimilum minnkar við þátttöku í visthópi um að meðaltali 37%. Þetta gerist vegna þess að fólk fer í meira mæli að skila flokkuðu sorpi til endurvinnslu, einhverjir koma sér upp jarðgerðarkassa en fyrst og síðast vegna þess að fólk hugar að sorpmagni sem kemur inn á heimilið. Þetta er gert með því t.d. að huga að umbúðum vara og setja límmiða á póstlúgu sem afþakkar auglýsingapóst.
Meðalþyngd sorps sem fer í tunnuna á ári, per einstakling á heimili, eftir þátttöku í visthópi, er 97 kg. Meðalsorpmagn frá hverjum höfuðborgarbúa á árinu 2001 var til samanburðar 244 kg. Ef þessar tölur eru bornar saman við prósentutöluna hér að ofan má sjá að flestir sem hefja þátttöku í visthópi eru nú þegar komnir langt á veg hvað varðar vistvænan lífsstíl.
Rafmagn
Rafmagnsnotkun á heimilium minnkar að meðaltali um 18%. Að meðaltali sparar hver fjölskylda 6000 kr. á ári.
Heitt vatn
Heitavatnsnotkun á heimilum minnkar að meðaltali um 27%. Að meðaltali sparar hver fjölskylda 16.300 kr. á ári.
Samgöngur
Bensínnotkun á heimilum minnkar að meðaltali um 13%. Að meðaltali sparar hver fjölskylda 23.400 kr. á ári.
Innkaup
Hlutfall umhverfismerktra vara af öllum vörum sem fólk kaupir eykst að meðaltali úr 11,5% í 19%. Flestir spara umtalsvert í innkaupum eftir að hafa yfirfarið þau og skipulagt betur, en á því eru ekki gerðar mælingar.