
SAMVINNA – VÍÐSÝNI – VELLÍÐAN
Aðfararorð - stefnumörkunVorið 2008 var ákveðið að marka sveitarfélaginu skólastefnu, bæjarstjórn skipaði verkefnisstjórn haustið 2008. Ákveðið var að afmarka stefnuna við grunnskóla, leikskóla og frístundastarf í sveitarfélaginu. Áhersla er lögð á að skóla- og frístundastarf sé í lifandi tengslum við nærsamfélagið.
Við vinnslu skólastefnunnar var áhersla lögð á fjölbreytileika í nálgun viðfangsefna til að koma til móts við þarfir hvers og eins, auk þess að skapa fjölbreytni í skóla og tómstundastarfi. Verkefnisstjórn hafði samráðshóp sér til aðstoðar. Í honum voru fulltrúar foreldra, nemenda, starfsmanna og ungmennaráðs. Samráðshópurinn lagði áherslu á að móta heildstæða sýn á menntun í sveitarfélaginu með aðkomu sem flestra. Auk þess var leitað til annarra íbúa og lögðu þeir fram sínar hugmyndir og tóku þátt í umræðunni á átta opnum fundum. Skólastefnan er afrakstur þeirrar vinnu. Sett eru fram yfirmarkmið og þeim fylgja hugmyndir að leiðum til að hrinda markmiðunum í framkvæmd.
Í nokkurn tíma hefur verið unnið eftir áherslum heilsueflingar og heilbrigðra lífshátta í skólastarfi. Í skólastefnunni er lögð áhersla á að þróa áfram þá hugmyndafræði með það að markmiði að viðhalda og efla heilbrigði barna og ungmenna. Takmarkið með slíku starfi er að efla sjálfsvitund og sjálfstraust nemenda þannig að þeir verði færir um að vinna að jákvæðri uppbygginu samfélagsins. Fjölbreytt hreyfing, hvort sem er í skipulögðum íþróttum, samveru eða útikennslu, er mikilvægur þáttur í starfi barna og ungmenna og verður því haldið áfram. Sé þessum þáttum sinnt vel næst samspil hugar og líkama sem skilar sér í heilbrigðri sál og hraustum líkama.
Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga ber ábyrgð á framkvæmd stefnunnar í samráði við stjórnendur skóla og frístundastofnana sveitarfélagsins. Skólastefnan er ekki meitluð í stein og er því endurskoðuð eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti.
Margir íbúar bæjarins hafa komið að samningu skólastefnunnar og þökkum við þeim þátttökuna.
Hér má sjá útgefinn bækling um Skólastefnuna
SAMVINNA.jpg)
Í skóla- og tómstundastarfi er samfélagið kynnt á jákvæðan hátt. Nemendur fá leiðsögn við að koma auga á, þróa og nýta sér tækifærin í sveitarfélaginu. Gróður og dýralíf í sveitarfélaginu er kynnt börnum og ungmennum þannig að þau líti á það sem eðlilegan hluta af tilverunni. Mannlíf og starfsemi stofnana og fyrirtækja í sveitarfélaginu er kynnt börnum og ungmennum svo að þau séu meðvituð um þá starfsemi sem fer fram í þeirra nánasta umhverfi. Saga samfélagsins er tengd viðfangsefnum barna og ungmenna frá fortíð til nútíðar.
Hugmyndir að leiðum:
. Nýta þá möguleika sem felast í nábýli Stranda og Voga.
. Eldri borgarar miðli þekkingu til barna og ungmenna.
. Álfagerði verði nýtt til samvista fyrir börn, ungmenni og eldri borgara.
. Skipulagðar heimsóknir og kynningar á fyrirtækjum í sveitarfélaginu.
. Félagasamtök kynni starfsemi sína í leik-, grunnskóla og frístundastarfi.
. Í samstarfi við félög verði boðið upp á val áfanga og kynningar.
Ætlunin er að börn, ungmenni og foreldrar þeirra upplifi heildstæða starfsemi í skóla- og tómstundastarfi. Skólastefna er í sífelldri þróun í takt við breytingar í samfélaginu. Áhersla er á innbyrðis samstarf í skóla og tómstundastarfi.
Hugmyndir að leiðum:
. Lögð er áhersla á samstarf í heildarskipulagi og framkvæmd starfs meðal annars með því að hafa sameiginlega starfsdaga.
. Samstarf skóla og frístundar verður reglubundið og kynnt á heimasíðum sveitarfélagsins.
. Stuðlað er að samstarfi skóla, frístundar, foreldra og annarra er vinna að málefnum barna og ungmenna.
. Stuðlað er að sem samfelldustu skóla- og tómstundastarfi með samvinnu stofnana og félagasamtaka.
. Leitað er leiða til að hafa virk og markviss samskipti.
. Sameiginleg vorsýning þar sem afrakstur vetrarins er kynntur.
. Sameiginlegur dagur að hausti þar sem starf vetrarins er kynnt foreldrum og forráðamönnum.
. Kröfur og væntingar foreldra og skóla séu í samræmi við þroska og þarfir nemenda.
Samstarf milli skóla, tómstundar og heimila byggi á virðingu og gagnkvæmum hlýhug með áherslu á ábyrgð allra í námi og þroska barna og ungmenna.
Hugmyndir að leiðum:
. Stöðugt er unnið að því að efla þekkingu, vekja virðingu og ábyrgðarkennd barna og ungmenna.
. Ábyrgð barna og ungmenna gagnvart sjálfum sér og umhverfinu verði efld.
. Starfsfólk og foreldrar eru jákvæðir gagnvart starfi foreldrafélaga.
. Fræðsla fyrir forráðamenn um uppeldi, nám, kennslu og tómstundir.
. Forráðamenn eru hvattir til virkrar þátttöku jafnt í skóla- og tómstundastarfi.
. Boðið er upp á vettvangsferðir í samstarfi við félög foreldra.
. Foreldrar eru alltaf velkomnir í skóla og tómstundastarf.
. Foreldrarölt.
VÍÐSÝNI.jpg)
Í skóla- og frístundastarfi er lögð áhersla á nýsköpun, frumkvæði og skapandi gagnrýna hugsun svo nemendur efli færni sína til að láta að sér kveða á almennum vettvangi. Áhersla er á alþjóðlegt samstarf og samstarf við önnur sveitarfélög. Komið er til móts við ólíkar þarfir, getu og áhugasvið barna og ungmenna, hlustað er á raddir barna og ungmenna og virðing borin fyrir hugmyndum þeirra.
Hugmyndir að leiðum:
. Fjölbreytileiki í nálgun viðfangsefna.
. Efla færni nemenda til að rýna í upplýsingar sér til gagns.
. List- og verkgreinanám verður eflt, samþætt innbyrðis og við annað starf.
. Efla tónmenntun.
. Þjálfun í rökræðum/samræðulist með virðingu fyrir viðmælendum.
. Efla umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika.
. Auka víðsýni og þekkingu með innlendu og erlendu samstarfi.
. Nemendum er leiðbeint með hagnýta notkun bóka- og gagnasafna.
. Efla skapandi hugsun.
Allir starfsmenn sveitarfélagsins hafa skýra sýn sem einkennist af fagmennsku og væntingum um árangur. Stuðlað er að jákvæðni, velgengni og árangri í starfi og námi.
Hugmyndir að leiðum:
. Yfirstjórn sveitarfélagsins styður stjórnendur deilda og stofnana í viðleitni þeirra til að þróa skóla- og frístundastarf. Umbunað er fyrir jákvætt hugarfar og árangur í námi og starfi.
. Æskilegt er að umbunað sé á heilsusamlegan, jákvæðan og uppbyggilegan hátt.
. Upplýsingar flæða milli deilda og stofnana.
. Starfsfólk færist milli deilda og stofnana eftir því sem þörf er á.
VELLÍÐAN.jpg&ext=jpg&w=250&h=200)
Til að skapa sem best starfsumhverfi er mikilvægt að hlúa að starfsfólki skóla og frístundastarfs og veita því sem best starfsskilyrði. Markvisst er unnið að því að laða að og halda í hæft og áhugasamt starfsfólk. Hvatt er til starfsþróunar. Allir starfsmenn sveitarfélagsins hafa skýra sýn sem einkennist af fagmennsku og væntingum um árangur. Starfsfólk sveitarfélagins þarf að hafa frumkvæði að því að vekja áhuga foreldra á skólastarfi og nýta sér jafnframt þann kraft sem foreldrastarf hefur í för með sér.
Hugmyndir að leiðum:
. Áhersla á fjölskylduvænt umhverfi.
. Áhersla á virðingu, umhyggju og þroska einstaklingsins.
. Hvatt til frumkvæðis og hugmyndaauðgi starfsmanna.
. Möguleiki að vaxa í starfi.
. Hvatt er til þess að leiðbeinendur ljúki námi til kennsluréttinda.
. Starfsmenn eru hvattir til þátttöku í samfélaginu meðal annars með búsetu.
. Starfsmönnum er búin góð vinnuaðstaða.
. Allar stofnanir hafa aðgang að innra neti sveitarfélagsins.
Stjórnun og skipulag skóla og frístundar tryggir góða nýtingu húsnæðis og góðan aðbúnað.
Hugmyndir að leiðum:
. Kennurum, börnum og ungmennum er búin góð starfsaðstaða og búnaður. Þegar hugað er að nýbyggingum eða endurnýjun búnaðar verður horft til framtíðar, haft samráð við fagfólk og sveigjanleika viðhaldið í nýtingu húsnæðis.
. Reglulega er lagt mat á skóla- og frístundastarf og það nýtt til markvissra umbóta.
. Öryggis er gætt í öllu skóla- og frístundastarfi og hugað að forvarnargildi þess starfs sem unnið er.
. Virkt forvarnarstarf er markviss hluti starfsins sem unnið er í samstarfi skóla, frístundar, heilsugæslu og lögreglu.