Þann 1. september 2008 tók gildi samningur á milli Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga um skipan, rekstur og starfsemi sameiginlegrar félagsmálanefndar og barnaverndarnefndar. Hinni sameiginlegu félagsmála- og barnaverndarnefnd Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga er ætlað að sinna verkefnum og umsýslu þeirra verkefna sem tilheyra félagsþjónustu sveitarfélaga sbr. 2. gr. laga um félagsþjónustu sem og þeim verkefnum sem barnaverndarnefnd er ætlað að inna af hendi skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002, eins og þau eru nánar skilgreind í 12. gr. bvl. Hin sameiginlega nefnd hlaut nafnið Fjölskyldu- og velferðarnefnd Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga
Eftirtaldir aðilar skipa sameiginlega Fjölskyldu- og velferðarnefnd Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga.
Hólmfríður Skarphéðinsdóttir formaður, Sandgerði
Sæunn Guðjónsdóttir, Sandgerði
Margrét Arna Eggertsdóttir, Sandgerði
Brynja Kristjánsdóttir, Garði
Ágústa Ásgeirsdóttir, Garði
R. Hanna Finnbogadóttir, Vogum
Jóhanna Lára Guðjónsdóttir, Vogum

Til baka