Bókasafn Stóru- Vogaskóla og Lestarfélagið Baldur
Stóru-Vogaskóla
Tjarnargötu 2
190 Vogar
Sími: 440 6289
Netfang: bokasafn@vogar.is
Lestrarfélagið Baldur á Facebook
Starfsfólk:
Már Einarsson, bókasafns- og upplýsingafræðingur
Opnunartími:
Mánudagar: 13-15 og 19-21
Þriðjudagar: 13-15
Miðvikudagar: 13-14:30
Fimmtudagar: 13-15
Föstudagar: 13-15
Bókasafnið er lokað í júlí.
Bókasafnið er til húsa í Stóru-Vogaskóla og hýsir skólabókasafnið og almenningsbókasafnið sem gengur undir nafninu Lestrarfélagið Baldur. Einnig er samstarf milli bókasafnsins og annarra almenningsbókasafna á Suðurnesjum. Þannig geta skírteinishafar fengið lánaðar bækur á bókasöfnum nágrannasveitarfélaganna á Suðurnesjum og skilað á bóksafnið í Vogum.
Safnkostur: íslenskar skáldsögur, þýddar skáldsögur, ævisögur, fræðirit ýmis konar, barnabækur, unglingabækur, handbækur, hljóðbækur, tímarit og teiknimyndasögur. Samtals á bókasafnið um það bil 13.000 safngögn.
Ef þú hefur áhuga á bókum eða tímaritum sem ekki eru á safninu, þá endilega láttu bókavörð vita!
Ágæt aðstaða er til lestrar á bókasafninu og er fólk hvatt til nýta sér þá aðstöðu. Starfsmaður bókasafnsins er fólki innan handar um að finna og velja bækur.
- Bókasafnsskírteini kosta 1.500 kr og eru þau endurnýjuð árlega. Skírteini eru ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára, eldri borgara, öryrkja og atvinnulausa.
- Útlánstími á hverja bók er 30 dagar, en nýjar bækur eru lánaðar í 14 daga. Hægt er að fá lán framlengt ef ekki er búið að panta bókina. Framlengja má lánstíma bóka með því að fara inn á eigið svæði í www.leitir.is og endurnýja sjálfur eða hringja í bókasafnið, en aðeins ef pöntun á þeim liggur ekki fyrir. Ef farið er fram yfir lánstíma, er dagssekt 15 kr fyrir hvert eintak.
- Nemendur í Stóru-Vogaskóla greiða ekki sektir af bókum sem þeir taka að láni á bókasafnsskírteini í skóla.
- Miðað er við að hver lánþegi geti verið með mest 20 bækur í láni í einu.
- Nemendur í Stóru-Vogaskóla mega hafa 3 bækur í láni í einu.
- Hægt er að fá bækur í millisafnaláni. Með millisafnalánum er átt við það þegar bókaverðir útvega rit sem bókasafnið á ekki, frá öðrum bókasöfnum. Það kostar 500 kr að fá hvert eintak í millisafnaláni.
- Boðið er upp á heimsendingu bóka fyrir sjúka og aldraða á föstudögum. Pantanir eru afgreiddar milli kl. 13 og 15 í síma 440 6289.
- Einnig er hægt að láta taka frá fyrir sig bækur sem eru í útláni. Hver pöntun kostar 100 kr.
- Á bókasafninu er tölva þar sem hægt er að komast á Internetið. Hver tími kostar 200 kr.
Safnkostur bókasafnsins er skráður á www.leitir.is Á vefnum býðst aðgengi á einum stað að fjölbreyttum safnkosti bókasafna á Íslandi og efni valinna sérsafna. Kerfið veitir upplýsingar um safnkost og aðgang að rafrænu efni hvort sem um er að ræða texta eða myndrænt efni. Jafnframt eru rafrænar tímaritsgreinar og gagnagrunnar í hvar.is leitarbær í gegnum leitir.is
Þú getur fylgst með útlánum þínum á www.leitir.is
Eftir að hafa fengið lykilorð frá bókasafninu er hægt að skrá sig inn á www.leitir.is Smellt er á Innskráning og kennitalan slegin inn (án bandstriks) í reitinn Notandanafn og síðan lykilorðið í reitinn þar fyrir neðan. Svo er smellt á Innskrá og á Mínar síður.
Á Mínum síðum geta viðskiptavinir:
- Séð hvað þeir eru með í láni.
- Endurnýjað lán ef enginn biðlisti er eftir gögnunum.
- Sett sig á biðlista eftir gögnum sem eru í útláni.
- Skoðað frátektirnar sínar og séð hvar í röðinni þeir eru.
- Skoðað fyrri útlán sín.
Við mælum með að lykilorði sé breytt eftir fyrstu innskráningu.
Eftir sem áður er viðskiptavinum velkomið að hringja í bókasafnið og spyrjast fyrir um stöðu sína eða fá lán framlengd. Síminn er 440 6289.
Hér má sjá lista af bókum og greinum sem fjalla um sveitarfélagið.
Verið velkomin á bókasafnið ykkar í Vogum!