Hér má nálgast upplýsingar um þá þjónustu sem boðið er upp á í Sveitarfélaginu Vogum.
Sveitarfélagið hefur markað þá stefnu að skapa fjölskylduvænt samfélag í Vogum og tekur þjónustan mið af þeirri stefnumörkun.
Þjónustuver sveitarfélagsins er á bæjarskrifstofum Iðndal 2, sem annast almenna símsvörun og upplýsingaveitu. Sími á bæjarskrifstofum er 424-6660.
Sveitarfélagið Vogar er í samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum um eftirfarandi þjónustuþætti:
- Dvalarheimili aldraðra
- Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
- Almannavarnir
- Brunavarnir Suðurnesja
- Fjölbrautaskóla Suðurnesja
- Tónlistarskóla
- Sorphirðu og sorpeyðingu- Kalka