Litir: E B H S
Leturstærð: Stór Stærri Stærst
Keilir er einkennisfjall Reykjaness og stolt Vogamanna. Nafnið fær fjallið af fallegri lögun sinni sem sannarlega er keila. Keilir er móbergsfjall sem rís 379 metra yfir sjávarmáli. Keilir er til orðinn við gos undir jökli á ísöld. Hann er þekktur vegna sérkennilegrar strýtumyndaðrar lögunar sinnar sem er til komin vegna gígtappa eða bergstands á fjallinu miðju er ver það gegn veðrun. Útsýni er glæsilegt af Keili yfir Reykjanesskagann og víðar.Aðgengi að Keili er gott af Reykjanesbraut um mislæg gatnamót á Strandarheiði. Greiðfært er öllum bílum um Afstapahraun að Höskuldarvöllum. Jeppavegur liggur upp eftir litlu en löngu felli sem nefnist Oddafell og er best að leggja bílnum þar sem sá vegur byrjar. Þaðan er um þriggja kílómetra gangur að fjallinu, um nokkuð ógreiðfært hraun fyrst í stað en stutt er í betra færi. Tilvalið er fyrir fjölskylduna að ganga á Keili, en gangan er um 7 km löng og tekur 2-3 klukkustundir, upp fjallið er greinilegur göngustígur. Landslagið er slétt að fjallinu, en nokkuð bratt upp. Á toppi fjallsins er gestabók.