Vogar standa við Vogavík, á norðanverðum Reykjanesskaga við Stakksfjörð. Sunnan við Voga er Vogastapi og norðan við er Vatnsleysuströnd. Vogar eru um 25 km. frá Hafnarfirði og um 14 km. eru í Reykjanesbæ.
Sveitarfélagið Vogar tengir byggðirnar á höfuðborgarsvæðinu við byggðirnar á Reykjanesinu. Strandlengjan í sveitarfélaginu er um 30 km löng. Vatnsleysustrandarvegurinn, um 12 km langur, er lagður bundnu slitlagi og tilvalinn fyrir þá sem velja vilja minni og hægari umferð en ef ekið er eftir Reykjanesbraut.
Náttúrunnendum er sérstaklega bent á Vatnsleysustrandarveginn því í Vogum eru fallegar tjarnir og klettar og töluvert um fuglalíf. Vogastapi, Vogatjörn, Kálfatjarnarkirkja og Staðarborg eru meðal þess sem ferðamönnum er ráðlagt að skoða.
Vogar eru því afar vel staðsettir í nágrenni við helstu markaðssvæði landsins, alþjóðaflugvöll og stórskipahafnir. Samgöngur eru með besta móti um tvöfalda Reykjanesbraut, en búið er að tvöfalda mestan hluta leiðarinnar í Voga.