Sveitarfélagið Vogar
Iðndal 2 190 Vogar
Skiptiborð: 440 6200
Fax: 440-6201
Netfang: skrifstofa@vogar.is
Opið
Mánudaga til föstudaga frá kl. 08:30 - 15:30.
Þann 1. janúar 2006 var nafni Vatnsleysustrandarhrepps breytt í Sveitarfélagið Vogar, samhliða því að stjórnskipan sveitarfélagsins var breytt. Sveitarfélagið er því að vissu leyti nýtt, en byggir á gömlum og traustum grunni.
Sveitarfélagið Vogar er næst landstærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum og nær yfir Vatnsleysuströnd og bæinn Voga. Í sveitarfélaginu bjuggu rúmlega 1.200 manns þann 1. desember 2007. Íbúum hefur fjölgað jafnt og þétt síðastliðin ár, enda í Vogum mjög fjölskylduvænt og stutt að sækja atvinnu og þjónustu.
Sveitarfélagið Vogar er mjög vel staðsett. Í nágrenni við þjónustu og vinnumarkað höfuðborgarsvæðisins, en býður upp á rólegt og vinalegt umhverfi þar sem stutt er í náttúruna.