Húsaleigubætur eru samkvæmt lögum ætlaðar til að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda. Rétt til húsaleigubóta eiga þeir sem leigja íbúðarhúsnæði til búsetu og eiga þar lögheimili.
Varðandi umsókn þarf að hafa eftirfarandi atriði í huga:
- Leigusamningur þarf að vera þinglýstur.
- Leigusamningur þarf að gilda til sex mánaða eða lengri tíma.
- Afrit af launaseðlum síðustu þriggja mánaða og skattframtal síðasta árs. Hér er líka átt við greiðsluseðla lífeyrissjóða og Tryggingastofnunar og frá Vinnumálastofnun.
- Bæjarskrifstofan útvegar íbúavottorð.
- Námsmenn sem leigja námsmannahúsnæði utan sveitarfélagsins þurfa að skila inn staðfestingu um skólavist frá viðkomandi skóla, þinglýstum húsaleigusamningi, skattframtali og launaseðlum.
Húsaleigubætur eru eftir á greiddar. Umsóknir um bætur skulu berast bæjarskrifstofu í síðasta lagi 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Húsaleigubætur eru greiddar út 5. hvers mánaðar. Sækja þarf um bætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsókn til ársloka.
Hægt er að sækja um endurútreikning húsaleigubóta ef tekjur, fjölskylduhagir eða annað sem gæti haft áhrif á bótarétt, skyldi breytast.
Nánari upplýsingar um húsaleigubætur
Húsaleigubætur, bæklingur Velferðarráðuneytis.
Lög um húsaleigubætur nr. 138/1997.
Umsóknareyðublað
Húsaleigusamningur um íbúðarhúsnæði