Litir: E B H S
Leturstærð: Stór Stærri Stærst
Sveitarfélagið Vogar hefur ákveðið að byggja upp miðbæjarkjarna í sveitarfélaginu. Um er að ræða svæði sem afmarkast af Stapavegi, Vogabraut og Iðndal, við innkeysluna í bæinn. Sú staðsetning er miðsvæðis í bænum, ekki síst með tilliti til fyrirhugaðs hverfis norðan við bæinn. Auk þess er gott aðgengi að svæðinu frá Reykjanesbraut. Því ættu að vera miklir möguleikar fólgnir í því að reka verslun og aðra þjónustu í miðbæ Voga. Aukin verslun og þjónustu ætti líka að skapa fleiri atvinnutækifæri í sveitarfélaginu.Meginmarkmið verkefnisins er að móta heilsteypt svæði fyrir verslun, þjónustu og íbúðabyggð sem verði vettvangur fjölbreytts mannlífs í sveitarfélaginu og móti fallega umgjörð við innkomu í bæinn. Bærinn hefur farið ört vaxandi og eru íbúar nú um 1.250.Á meðfylgjandi myndum má sjá rammaskipulagstillögu af svæðinu sem bæjarstjórn fékk arkitektastofuna Landslag til að vinna. Tillagan tekur töluvert mið af hryggnum Skyggni sem er á miðju svæðinu, en gert er ráð fyrir góðu aðgengi að honum og gönguleiðum í kring. Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði allt að 94 íbúðum í einbýlis- og parhúsum á einni hæð og allt að sex hæða fjölbýlishúsum. Við horn Stapavegar og Vogabrautar verður hinn eiginlegi miðbæjarkjarni með verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir því að í fyrsta áfanga verði reist 1.500 til 2.000 m2 hús á tveimur til þremur hæðum. Þar fyrir framan verði torg og reiturinn hannaður þannig að við torgið njóti sólar sem mest.Hér fyrir neðan má finna tillögur um breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 1994-2014 vegna miðbæjarsvæðis, nýtt deiliskipulag miðbæjarsvæðis, auk tengdra breytinga á deiliskipulagi við Iðndal og iðnaðarsvæði við Heiðarholt. Vinna við verkefnið hefur tekið um tvö ár, en tillögurnar eru byggðar á rammaskipulagstillögum sem kynntar hafa verið fyrir íbúum hér á vefnum og á íbúafundi. Þær vinnutillögur má jafnframt nálgast hér að neðan. Við þær bárust nokkrar ábendingar og athugasemdir sem höfðu áhrif til breytinga á endanlegri skipulagstillögu. Óhætt er að segja að aldrei hafi verið eins mikil vinna verið lögð í vinnslu skipulagstillögu í sveitarfélaginu.
Tillaga um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 1994-2014Tillaga um nýtt deiliskipulag miðbæjarsvæðisGreinargerð með deiliskipulagi miðbæjarsvæðisTillaga um breytingu á deiliskipulagi við IðndalTillaga um breytingu á deiliskipulagi við Heiðarholt
Hugmyndir sem unnið var með á vinnslustigi verkefnisins.RammaskipulagstillaganÞrívíddarmyndir af svæðinu