Litir: E B H S
Leturstærð: Stór Stærri Stærst
TILLAGAum deiliskipulag lóðar úr landi Stóra Knarrarness íSveitarfélaginu Vogum.Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi lóðar úr landi Stóra - Knarraness á Vatnsleysuströnd, Spildu á Dal landnr. 211259, skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Um er að ræða eina lóð þar sem heimilt verður að byggja allt að 350 m² íbúðarhús ásamt 130 m² vinnustofu og 30 m² gróðurhús, hámarkshæð húsa er 5 m yfir jörðu. Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Iðndal 2, frá 7. desember 2009 til og með 4. janúar 2010 einnig er hún á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.isÞeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með mánudagsins 25. janúar 2010. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu sveitarfélagsins. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna telst samþykkur henni.Tillagan er í samræmi við auglýst og samþykkt aðalskipulag, sem ekki hefur enn hlotið staðfestingu en er í staðfestingarferli hjá Skipulagsstofnun.Vogum, 7. desember 2009. Bæjarstjóri.
Sjá skipulagsuppdrátt