Litir: E B H S
Leturstærð: Stór Stærri Stærst
Lausar lóðir í VogumMikil uppbygging hefur verið í Vogum undanfarin ár og íbúum fjölgað hratt. Sveitarfélagið er vel staðsett í nágrenni við stærstu markaðssvæði og alþjóðaflugvöll. Samgöngur milli Voga og höfuðborgarsvæðisins eru mjög góðar um tvöfalda upplýsta Reykjanesbraut.
Sveitarfélagið er mjög fjölskylduvænt og hefur verið lögð mikil áhersla á heilsueflingu í starfi leik- og grunnskóla.
Sveitarfélagið Vogar hefur eftirtaldar lóðir lausar til úthlutunar.
AtvinnulóðirIðndalur 12. Stærð: 2.411 m2. Heiðarholt 2. Stærð: 1.500 m2. Skilgreind fyrir eldsneytisafgreiðslu.Heiðarholt 2a. Stærð: 2.500 m2. Hentar vel fyrir bílgreinastarfsemi.Heiðarholt 4. Stærð: 2.728 m2.Gatnagerð er lokið
EinbýlishúsalóðirVogagerði 23. Stærð: 709 m2. Stendur í grónu hverfi.Gatnagerð er lokið. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofu í síma 440-6200 eða með því að senda t- póst á netfangið skrifstofa@vogar.is Samþykkt um gatnagerðargjald í Sveitarfélaginu Vogum