Félagsmiðstöðin Boran
Hafnargötu 17, 190 Vogar
Sími: 440-6225
www.boran.is
Starfsfólk
Stefán Arinbjarnarson, frístunda- og menningarfulltrúi
Jóna Ósk Jónasdóttir, tómstundaleiðbeinandi
Tinna Sigurbjörg Hallgrímsdóttir, tómstundaleiðbeinandi
Guðmann Rúnar Lúðvíksson, tómstundaleiðbeinandi
Félagsmiðstöðin er til húsa í sameiginlegu húsnæði Frístundar og Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar.
Opnunartími Borunnar.
Mánudagur:
20:00-22.00 8. 9. & 10. Bekkur
Þriðjudagur:
LOKAÐ
Miðvikudagur:
17:00--19:00 6. & 7. Bekkur
20:00-22.00 8. 9. & 10. Bekkur
Fimmtudagur:
LOKAÐ
Föstudagur:
20:00-23:00 8. 9. & 10. Bekkur (Annanhvern föstudag er opið til 20:00-22:00)
*Ýmsar uppákomur eru vikulega, þær eru auglýstar sérstaklega
BORAN ÁSKILUR SÉR ÞANN RÉTT AÐ BREYTA OPNUNARTÍMA EF ÞESS ÞARF.
Foreldrar athugið að 7. bekkur má frá áramótum mæta á opin hús en fá þó ekki að taka þátt í ferðum og slíku sem tengist Samfés og slíkum viðburðum. Foreldrar kynnið ykkur viðburði á okkar vegum, það þarf leyfisbréf í ALLA viðburði sem eru haldnir umfram hefðbundinn opnunartíma eða utan bæjarfélagsins.
Meginmarkmið.Í félagsmiðstöðinni Borunni á starfið að skipta máli fyrir einstaklinginn og samfélagið í kringum hann. Reynt er að hafa úrval afþreyinga, uppákoma og viðburða með það að markmiði að auka vellíðan og ánægju, efla þroska og auka víðsýni. Starfsmenn gera sér grein fyrir því að þetta er frítími unglinganna og okkar starf felst í því að auka úrval afþreyingar og hafa afdrep fyrir þau þegar þeim hentar.
Þær leiðir sem farnar eru til að ná settum markmiðum:
- Virkja unglingana í starfi.
- Kenna þeim að virða reglur og virða starfsemina og umhverfi hennar.
- Gefið þeim kost á að hafa áhrif á starfsemina og verkefnaval hennar.
- Til þess að auka vellíðan og ánægju.. þarf unglingurinn að:
- VITA : Að hver og einn á að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
- Finna fyrir : Hvatningu á jákvæðan hátt af félögunum og starfsmönnum.
- Að læra að taka tillit til annara og þarfa þeirra. Hver og einn er sérstakur á sinn hátt.
Við þroskandi tómstundir fær einstaklingurinn að:
- Fást við fjölbreytt og skemmtileg viðfangsefni.
- Læra að einstaklingar eru misjafnir og við tökum vel á móti öllum.
- Vinna á jafnréttis og lýðræðisgrundvelli.
- Eyða frítíma sínum í umhverfi sem er aðlaðandi og vingjarnlegt.
Dagskrá Félagsmiðstöðvarinnar er unnin af starfsmönnum en dagskipulag ákveðinna viðburða er ákveðið í samráði við Unglingaráð/Boruráð félagsmiðstöðvarinnar.
Starfsfólk Félagsmiðstöðvarinnar aðstoðar við val á afþreyingu. Þess vegna er mikilvægt að það búi yfir þeirri reynslu sem þarf til að veita unglingunum ráðgjöf og athygli eftir umfangi verkefnanna.
Framtíðarsýn:
Að ná sem bestum árangri í uppbyggingu félagsstarfs unglinga í bæjarfélaginu bæði hvað varðar að skapa frumkvöðla og leiðtoga, efla einstaklinginn í einstaklings og hópaverkefnum. Örva krakkana til ákvörðunartöku og ábyrgðar á eigin gerðum. Með aukinni áherslu á þessa þætti verða til sterkari einstaklingar sem munu geta haft áhrif innan sveitar sem utan.