Íþróttir, útivist og tómstundir
Aðstaða til íþrótta og útivistar er góð í Vogum, en í sveitarfélaginu er mjög góð íþróttamiðstöð og sundlaug. Í sveitarfélaginu er starfandi Ungmennafélagið Þróttur, en á þess vegum er hægt að stunda ýmsar íþróttir. Auk þess er starfandi hestamannafélagið Máni, Golfklúbbur Vatnsleysustrandar og Smábátafélag.
Í sveitarfélaginu er einnig öflugt félags- og tómstundastarf sem gæðir sveitarfélagið miklu lífi. Hægt er að nálgast upplýsingar um félagasamtökin hér til hliðar.
Fyrir þá sem kjósa útivist er af nógu að taka. Aðstaða til að stunda, göngu, hjólreiðar, reiðmennsku, golf og siglingar, er mjög góð.
Þú getur gengið frá húsinu þínu, hvort sem þú kýst að ganga meðfram ströndinni eða ganga fornar gönguleiðir. Á vefnum er hægt að nálgast kort með gönguleiðum í bænum. Sjá einnig upplýsingar um athyglisverða staði í sveitarfélaginu.
Hjólreiðatúr með fjölskylduna eftir Vatnsleysuströndinni er upplögð skemmtun. Vegurinn er með bundnu slitlagi og þar er lítil umferð. Ekkert jafnast á við það að hjóla í rólegheitum í sveitasælunni, setjast niður á heiðinni eða fjörunni, hlusta á fuglasönginn og maula nestið. Fyrir þá sem vilja erfiðari hjólreiðar er vegurinn upp á Stapann tilvalinn.
Hesthúsabyggðin er staðsett í 5 mín. göngufjarlægð frá Vogunum áleiðis á Stapann. Þaðan er óslitinn reiðvegur til Reykjanesbæjar um Stapann og meðfram Vatnsleysustrandarveginum til Hafnarfjarðar.
Við Kálfatjörn á Vatnsleysuströndinni er 9 holu golfvöllur. Völlurinn er í uppbyggingu og er verið að vinna að breytingum og lengingu brauta. Völlurinn er skemmtilegur í fallegu umhverfi við sjóinn.
Fyrir þá sem stunda siglingar er fátt sem jafnast á við að sigla undir Stapann eða meðfram ströndinni í blíðviðri og njóta útsýnisins. Stutt er á miðin fyrir þá sem vilja veiða í soðið, hvort heldur fisk eða svartfugl.